Starfsemi Heilsustofnunar tryggð til 2030

Í dag verður undirritaður nýr þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Samningurinn er efnislega samþykktur en Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands undirrita samninginn formlega í Matstofu Jónasar á Heilsustofnun um eða upp úr hádegi í dag. Við sama tækifæri verður samningurinn kynntur efnislega. Samningurinn gildir til ársloka 2029.

„Við erum mjög ánægð með nýjan samning sem tryggir starfsemi Heilsustofnunar til næstu þriggja ára eða til ársloka 2029 og áframhald þeirrar mikilvægu endurhæfingar sem hér fer fram,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í bréf til starfsmanna. „Við munum áfram sinna endurhæfingu um 1.350 einstaklinga á ári og sá góði árangur sem við höfum náð fær viðurkenningu með talsvert auknum fjármunum.  Þannig er tryggt að sjúklingar munu áfram fá faglega endurhæfingu hjá þeim frábæra hópi starfsfólks sem vinnur á Heilsustofnun að því að bæta líðan og lífsgæði sjúklinga.“

Við segjum nánar frá innihaldi samningsins síðar í dag.

Related posts

Parmesanfiskur & Döðlusalat

Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Plokkfiskur með sinnepi og osti