Plokkfiskur með sinnepi og osti

Plokkfiskur er minn skyndibiti. Ég kaupi tilbúinn plokkfisk og bæti við vel af smjöri og sinnepi og strái osti yfir herlegheitin. Gott að setja basil í lokin. Plokkfiskur er mjög misþykkur og því erfitt að gefa upp magntölur en um tvö kíló af plokkfiski er passlegt fyrir sex. Ekki spara smjör, sinnep eða ost.

Þú þarft:

  • Plokkfiskur
  • Smjör
  • Sinnep
  • Ostur
  • Basilíka
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Bræðið saman vel af smjöri og sinnepi og blandið við plokkfiskinn. Setjið í eldfast fat og vel af osti yfir. Bakið fallega brúnt í ofni við 200 gráður eða jafnvel rúmlega það. Stráið basilíku yfir í lokin.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Grasaferð í Heiðmörk – Myndir

Grasaferð í blíðviðri í Heiðmörk