Tabbouleh salat

Tabbouleh er miðausturlenskt salat sem hentar með öllum mat. Búlgur er úr steyttu, þurrkuðu og forsoðnu durum-hveiti. Það er töluvert næringarríkara en kúskús þar sem það er mun minna unnið og því hafa næringarefnin fengið að halda sér.

Tabbouleh:

  • 50 g búlgúr
  • 50 g fersk steinselja söxuð
  • 50 g fersk mynta söxuð
  • 200 g tómatar skornir í litla teninga
  • 3 vorlaukar skornir fínt
  • safi úr einni sítrónu
  • 3 msk ólífuolía

Aðferð:

  1. Byrjum á því að skola vel búlgúrkornið með því að skella því í sigti og láta kalt vatn renna á það. Því er svo komið fyrir í skál ásamt 200 ml af sjóðandi vatni, skálinni lokað með plastfilmu og látið standa í 30 mínútur.
  2. Þegar búlgúrkornið er tilbúið er öllu blandað saman.

Verði ykkur að góðu!


Related posts

Hnetubrauð með fræjum

Kotasælubrauð með höfrum og gulrótum

Þorskur og kartöflur í tælensku karrí