Kakókúlur með appelsínubragði sem uppfylla súkkulaðilöngunina og gefa okkur góða orku í leiðinni. Appelsínubragðið gefur skemmtilegan karakter og ferskleika á móti súkkulaðibragðinu. Ég vel að nota lífrænt hráefni í mínar hrákúlur og þar sem börkurinn af appelsínunni er notaður í þessa uppskrift þá er mikilvægt að nota lífræna appelsínu í kúlurnar. Ef þú finnur ekki lífræna appelsínu þá myndi ég skipta út berki fyrir meiri appelsínusafa.
Þú þarft:
- 2 dl lífrænar möndlur
- 2 dl lífrænar kasjúhnetur
- Börkur af 1 lífrænni appelsínu
- 3 msk lífrænt kakó + kakó til að velta upp úr
- 15 ferskar döðlur
- safi úr 1/2 appelsínu
- hnífsoddur salt
Aðferð:
- Byrjið á að setja möndlur og kasjúhnetur í matvinnsluvél og gera að
smáu kurli. - Bætið við kakó, salti og rifnum appelsínuberki og blandið aftur.
- Steinhreinsið döðlur og blandið saman ásamt appelsínusafa.
- Rúllið upp í passlega stórar kúlur og veltið upp úr kakói.
- Geymist í ísskáp eða frysti.
Verði ykkur að góðu.