Þetta hnetu- og fræbrauð er ótrúlega gott og matarmikið, með skemmtilegu biti úr hnetunum og fræjunum. Það er sérlega gott með smjöri eða bragðmiklum osti og hentar líka vel með hummus. Hnetunum má skipta út eftir smekk og bæta við þurrkuðum ávöxtum fyrir örlitla sætu. Öllu er blandað saman í skál og bakað í formi, en mikilvægt er að leyfa brauðinu að kólna alveg áður en það er skorið, svo sneiðarnar haldist vel saman.
Hér má leika sér með hráefnin og velja hnetur eftir smekk eða því sem til er í skápnum. Einnig má skipta hluta hnetanna út fyrir saxaðar þurrkaðar apríkósur, trönuber eða sveskjur, sem gefa brauðinu örlitla sætu og skemmtilega áferð. Haldið heildarmagninu svipuðu og látið hörfræ, chiafræ og psyllium husk halda sér, því þau hjálpa til við að binda brauðið saman.Uppskriftin miðast við eitt brauð.
Hnetubrauð:
- 200 g haframjöl eða bókhveitiflögur
- 80 g sólblómafræ
- 80 g graskersfræ
- 30 g heslihnetur
- 30 g kasjúhnetur
- 30 g möndlur
- 2 msk möluð hörfræ
- 2 msk chiafræ
- 3 msk psyllium husk
- 1 tsk sjávarsalt
- 2–3 msk agavesíróp eða hunang
- 3 msk ólífuolía
- 350 ml vatn
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C og klæðið brauðform með bökunarpappír.
- Blandið öllum hráefnunum vel saman. Setjið blönduna í formið, þrýstið vel niður og sléttið yfirborðið.
- Bakið í forminu í 30 mínútur.
- Lyftið brauðinu úr forminu og fjarlægið bökunarpappírinn. Bakið áfram á grind eða bökunarplötu í 30 mínútur.
- Látið brauðið kólna alveg á grind áður en það er skorið.
Verði ykkur að góðu!