Lárperusalat með kasjúhnetuolíu úr smiðju Halldórs Steinsson á Matstofu Jónasar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Salatið er mjög gott eitt og sér en einnig afbragðsmeðlæti með fiski eða öðru sem hugurinn girnist. Góðar fitur í lárperunni og ólífuolíunni einnig eru spírurnar pakkaðar af lífsnauðsynlegum ensímum og próteinum. Í kasjúhnetuolíunni getið þið notað kóríander, steinselju eða basilíku.
Lárperusalat:
- Lárpera
- Rauðlaukur
- Spíraðar blandaðar baunir
- Radísuspírur
- Brokkólíspírur
- Alfaalfaspírur
Aðferð:
- Hér er öllu blandað saman og þið ráðið magninu.
Kasjúhnetudressing:
- 200 g kasjúhnetur
- Góð ólífuolía
- Sítrónusafi úr ½ sítrónu
- 1 tsk rósmarín
- Ein lúka ferskar kryddjurtir
- 2-4 hvítlauksgeirar
- Sjávarsalt
Aðferð:
- Ristið kasjúhneturnar í ofni þar til þær eru fallega brúnar.
- Setjið hneturnar í blandara og olíu þannig að rétt fljóti yfir. Bætið við sítrónusafa, hvítlauk, kryddjurtum og salti. Vinnið þetta saman í blandara.
Verði ykkur að góðu!