Pekanhnetubuff úr smiðju Halldórs Steinsson á Matstofu Jónasar. Þessi er dálítið spari og er víða á borðum um jólin. Gott að bera fram með spínatsalati með spírum, hvítlauksbökuðum gulrótum með kúmeni og grilluðum kúrbít eins og sést á myndinni.
Þú þarft:
- 250 g rauðar linsur eða bygg
- 2 tsk karrý
- 300 g pekanhnetur, þurrristaðar og malaðar
- 300 g heslihnetur, þurrristaðar og malaðar
- 2 msk olía
- 1 rauðlaukur, smátt saxaður
- 3 hvítlauksrif
- 2 sellerístilkar, smátt skornir
- 2 gulrætur, gróft rifnar
- ¼ sellerírót, gróft rifin
- 1 sæt kartafla ekki of stór samt, afhýdd og gróft rifin
- 4 msk tómatpúrra
- 3 msk mangó chutney
- 1 tsk grænmetiskraftur
- 1 tsk túrmerik
- Þumall af engiferrót fínt saxað
- ½ tsk cumin
- 1 tsk salt
- ¼ tsk cayenne pipar
Aðferð:
- Sjóðið linsurnar í um 20 mínútur.
- Ristið hneturnar í ofni 170°C í 7 mínútur, kæla og mala síðan í matvinnsluvél.
- Hitið olíu á pönnu og steikið allt grænmetið þangað til það er meyrt. Bætið við tómatpúrru, mangó chutney, grænmetiskrafti, engifer, túrmerik, cumin, salti og cayenne pipar. Látið þetta malla í svona 5-10 mínútur.
- Setjið þetta allt í skál og bætið soðnum linsum og hnetum útí og hrærið vel saman. Ef blandan er of blaut er gott að setja smá haframjöl útí.
- Best er að láta blönduna kólna alveg áður en buffin eru mótuð og bökuð.
- Setjið bökunarpappír á ofnplötu og mótið buffin í höndunum eða með ískúlara og bakið við 180°C í 25-30 mínútur. Bökunartíminn fer eftir ofninum sem er notaður, gæti þurft að bæta við eða minnka tímann gott er að fylgjast með og passa að buffin dökkni ekki of mikið þau eiga að vera stökk og fallega brún.
Hindberjasulta:
- 500 g hindber
- 1 kanilstöng
- 2 msk hunang eða hlynsíróp
- Smávegis salt
Aðferð:
- Allt sett í pott og látið malla í 15-20 mínútur. Látið kólna.
Villisveppasósa:
- 2 lúkur af þurrkuðum villisveppum lagðir í bleyti
- 1 laukur smátt saxaður
- 4 hvítlauksgeirar
- 5 stk sólþurrkaðir tómatar
- 1 tsk timjan
- 1 tsk rósmarín
- 250 ml grænmetissoð
- 250 ml kókosmjólk
- 1 lúka söxuð steinselja
- Salt og pipar
Aðferð:
- Villisveppirnir lagðir í bleyti.
- Léttsteikið lauk og hvítlauk í smávegis af olíu í potti. Bætið við tómötum og veillisveppum með svolitlu af sveppavatninu. Öllu öðru bætt við og látið malla við vægan hita í 10 mínútur. Maukað með töfrasprota og ef þið viljið þykkja sósuna má nota maísmjöl, kartöflur eða hveitijafning.