Hrökkbrauð og rauðrófuhummus frá Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Hrökkbrauðið er frábært fyrir þá sem eru að reyna að minnka kolvetni því það stútfullt af fræjum sem innihalda mikið af próteinum og fitum. Rauðrófuhummus er tilvalið meðlæti með hrökkbrauðinu. Rauðrófur er vannýttar í matseld hjá okkur því þær eru ótrúlega næringarríkar af magnesíum, kalíum og A-vítamíni. Einnig er rauðrófan öflug fyrir hjarta- og æðakerfið því hún er rík af nítrati (NO3) sem hefur æðavíkkandi áhrif og getur lækkað blóðþrýsting.
Hrökkbrauð:
- 1 dl hörfræ
- 1 dl sólblómafræ
- 1 dl sesamfræ
- 1 dl graskersfræ
- 1 dl glútenlaust haframjöl
- 4 dl bókhveiti
- 2 tsk salt
- 1 dl ólífuolía
- 2 dl vatn
Aðferð:
- Allt sett í skál og hrært saman með sleif. Látið standa í 30 mínútur.
- Flatt út á sílikonmottu eða bökunarpappír og bakað við 180 gráður í 20 mínútur.
Rauðrófuhummus:
- 1 bolli kjúklingabaunir eða smjörbaunir
- 200 g soðin rauðrófa
- 1 msk ólífuolía
- 2 saxaðir hvítlauksgeirar
- 2 msk tahini
- 1/4 bolli sítrónusafi
- 1 tsk paprikuduft
- Sjávarsalt
- Cayennepipar
Aðferð:
- Baunirnar lagðar í bleyti yfir nótt og soðnar í 60-90 mínútur eða þar til þær verða meyrar. Allt maukað í matvinnsluvél og smakkað til með salti og pipar.
- Geymist í loftþéttum umbúðum í um viku.
Þessar uppskriftir er að finna í nýrri matreiðslubók Heilsustofnunar.