Fennelsalat

Fennelsalat úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumanns á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Passar við ýmis tækifæri og er sérlega gott með steiktum fiski.

Þú þarft:

  • 3 stk fennel
  • Handfylli ferskur kóríander
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 1 sellerístöngull
  • Handfylli sellerí lauf
  • 4 msk ólífuolía
  • 4 msk eplaedik
  • Safi úr einni sítrónu

Aðferð:

  1. Fennelið skorið í tvennt og svo í þunnar sneiðar.
  2. Allt nema fennelið sett í blandara og gert silkimjúkt. Blandið dressingunni við fennelið.

Halldór Steinsson, yfirmatreiðlsumeistari

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime