Sykurlausar brúnkur

 Það er enginn viðbættur sykur í þessum bragðgóðu brúnkum. Uppskriftin er upphaflega fengin frá matgæðingnum Guðrúnu Veigu. Hér hefur hún verið aðlöguð nokkuð að smekk og stærð kökuforms.

Botn:

  • 200 g kasjúhnetur
  • 200 g döðlur
  • 20 g kakó

Krem:

  • 1 avókadó
  • 5 msk hunang
  • 20 g kakó
  • 2 tsk sítrónusafi
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  1. Ristið og saxið hneturnar og blandið með döðlum og kakó í matvinnsluvél. Ef vélin á erfitt með döðlurnar er hægt að saxa þær fyrst vel niður og sjóða í nokkrar mínútur. Smyrjið þessu í kökuform sem klætt er bökunarpappír.
  2. Blandið saman öllu sem á að fara í kremið í hrærivél eða matvinnsluvél. Smyrjið þessu á kökuna.
  3. Frystið í minnst hálftíma og skerið svo í bita.
  4. Skreytið með berjum og kókosflögum eða því sem hugurinn girnist.

Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius

Related posts

Sveppir þurfa pláss

Ravioli, brúnað salvíusmjör og heslihnetur

Svartbaunaborgari með guacamole