Lax puttanesca

Einfölduð uppskrift úr smiðju Ottolenghi. Uppskriftin passar vel fyrir sex en gott að hafa steiktar kartöflur eða brauð á kantinum.

Olían:

  • 70 ml ólífuolía
  • 8 ansjósuflök
  • 2 msk tómatmauk
  • 1 tsk chiliflögur
  • 2 tsk marin kóríanderfræ
  • 4 saxaðir hvítlauksgeirar
  • 1 sítrónubörkur
  • 2 tsk hunang

Aðferð:

  1. Látið olíu, ansjósur og tómatmauk í pott og látið malla á vægum hita í 5 mínútur. Bætið við chiliflögum og kóríanderfræjum og bætið við einni mínútu. Takið pottinn af hitanum.
  2. Bætið við hvítlauk, sítrónuberki og hunangi. Hrærið vel og leyfið þessu að kólna í 15 mínútur.

Fiskurinn:

  • 1,2 kíló roðdreginn lax
  • 2 sítrónur
  • Salt og pipar
  • 250 g kirsuberjatómatar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200 gráður og smyrjið eldfast fat eða notið bökunarpappír. Snyrtið og þerrið fiskinn vel.
  2. Skerið sítrónurnar í sneiðar og raðið í botninn á fatinu. Saltið fiskinn og piprið hann vel á báðum hliðum áður en hann fer ofan á sítrónurnar. Setjið hálfskorna tómata til hliðar í fatið og makið kryddolíunni yfir fiskinn.
  3. Bakið í 15-18 mínútur og leyfið fisknum að hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram.

Salsa:

  • 80 g ólívur
  • 40 g kapers
  • 1 sítróna
  • 2 msk ólívuolía
  • Basilíka

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman og setjið yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.

Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius

Related posts

Sykurlausar brúnkur

Sveppir þurfa pláss

Ravioli, brúnað salvíusmjör og heslihnetur