Perur með berjum og gráðaosti

Hunangsristaðar perur með valhnetum, berjum og gráðaosti. Einfalt að matreiða en vekur lukku á diski. Uppskriftin miðast við sex. Hæfilegt er að nota sex litlar perur eða þrjár stórar. Ég notaði um hálfan bolla af gráðaosti og svipað af hnetum en nær einum bolla af ferskum berjum. Nota má hvaða ber og hnetur sem ykkur líkar og fetaostur kemur líka vel út ef gráðaostur er ekki vinsæll.

Perur:

  • 6 lífrænar perur
  • 3 msk hunang
  • 2 msk smjör
  • Fersk ber
  • Gráðaostur
  • Valhnetur
  • Svartur pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200 gráður. Ristið og saxið hneturnar.
  2. Skerið perurnar í helminga og kjarnhreinsið. Takið hýðið af ef ykkur finnst það betra. Gott er að skera örlítið af botninum á perunni til þess að hún sé stöðugri. Penslið með hunangssmjörinu og bakið í 15-20 mínútur.
  3. Takið perurnar úr ofninum og skreytið á diska með gráðaosti, ferskum berjum og hnetum. Örlítið hunang og svartur pipar ofan á allt saman skaðar ekki.

Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius

Related posts

Lax puttanesca

Sykurlausar brúnkur

Sveppir þurfa pláss