Svartbaunaborgari með guacamole

Svartbaunaborgarar með guacamole úr smiðju Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Uppskriftin er hæfileg fyrir 4-6 borgara. Guacamole eða lárperumauk smellpassar með.

Svartbaunaborgarar:

  • 2 dósir svartar baunir eða 480 g soðnar svartar baunir.
  • 2 msk ólífuolía
  • 1 laukur, saxaður
  • 3 hvítlauksrif, pressu
  • 1 eða fleiri jalapeño-pipar, fínt saxaður
  • 4 msk tómatmauk
  • 1 tsk broddkúmen
  • 1 tsk chipotle-duft eða 1 tsk reykt paprikuduft + ¼ tsk chiliduft
  • 3 msk balsamedik
  • 1 stórt egg
  • ¾ bolli fetaostur, mulinn
  • ½ bolli brauðrasp
  • 1 tsk salt
  • Svartur pipar eftir smekk
  • Smá olía til eldunar

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180°C. Dreifið svörtu baununum á bökunarplötu og bakið í um 15-20 mínútur. Þetta dregur úr raka í baununum og hjálpar borgurunum að halda betur lögun.
  2. Hitið ólífuolíu á pönnu. Steikið laukinn í um 3 mínútur. Bætið þá hvítlauk, jalapeño, tómatmauki, broddkúmeni, chipotle-dufti, salti og pipar út á og steikið áfram í um 2 mínútur.
  3. Setjið helming baunanna ásamt lauk- og kryddblöndunni í matvinnsluvél. Bætið balsamediki, eggi og brauðraspi saman við og púlsið stuttlega. Blandan á að haldast gróf en ekki verða að mauki.
  4. Setjið blönduna í skál og blandið restinni af baununum og fetaostinum varlega saman við.
  5. 5. Mótið 4–6 borgara. Ef blandan er of blaut má bæta við örlitlu brauðraspi. Ef hún er of þurr má bæta við smá vatni, balsamediki eða olíu.
  6. Steikið borgarana á pönnu við meðalhita í 4-5 mínútur. Á grilli er gott að penslana borgarana með olíu og grilla við 200 gráður á hvorri hlið. Í ofni er gott að baka þá við 200 gráður í 20-25 mínútur og snúa þeim einu sinni.

Gaucamole:

  • 2 stórar, vel þroskaðar lárperur
  • 2 msk ferskur límónusafi
  • ½ tsk salt, eða eftir smekk
  • 3 msk rauðlaukur, fínt saxaður
  • 2 msk ferskt kóríander, fínt saxað
  • 1 þroskaður tómatur, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
  • ½–1 jalapeño, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)

Aðferð:

  1. Skerið lárperurnar í tvennt, fjarlægið steinana og skafið aldinkjötið úr hýðinu með skeið.
  2. Setjið lárperurnar í skál ásamt límónusafa og salti. Stappið með gaffli þar til maukið er eins gróft eða mjúkt og þið viljið.
  3. Bætið rauðlauk og kóríander saman við. Hrærið tómat og jalapeño einnig út í ef það er notað.
  4. Blandið varlega saman og smakkið til með meira salti eða límónusafa eftir þörfum.

Forsíðumynd: Halldór Steinsson

Mynd að neðan: Pálmi Jónasson

Related posts

„Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi“

Ljósmyndasýning Tómasar Guðbjartssonar á Heilsustofnun NLFÍ

Granólastykki