Fylltir pastakoddar eða ravioli með brúnuðu salvíusmjöri, parmesan og ferskum heslihnetum. Hér eru fá en vönduð hráefni í lykilhlutverki. Einfalt en sérlega bragðgott. Notið þá fyllingu í ravioli sem ykkur finnst best en allra best er að gera heimagert ravioli. Notið ósaltað smjör í alla matargerð og bætið góðu flögusalti við eftir þörfum.
Ravioli:
- 750 g ferskt ravioli
- 125 g ósaltað smjör
- 2 söxuð hvítlauksrif
- 10-20 fersk salvíublöð
- 3 dl rifinn parmesan
- 3 dl ristaðar og saxaðar heslihnetur
- 1 límónubörkur
- Svartur pipar
Aðferð:
- Bræðið smjörið í pönnu og bætið síðan við hvítlauk og salvíu. Hrærið í smjörinu þar til það brúnast aðeins og gefur frá sér ilm af hnetum og karamellu. Setjið til hliðar. Smjörið á að verða brúnleitt en alls ekki svart.
- Sjóðið saltað vatn í stórum potti og eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
- Hrærið soðnu pasta og brúnuðu smjöri saman í skál. Setjið þetta á fjóra diska og skreytið með parmesan, hnetum, svörtum pipar og rifnum berki af límónu.
Forsíðumynd: Kristín Pálmadóttir Thorlacius
Aðrar myndir: Pálmi Jónasson og Kristín Pálmadóttir Thorlacius