Stökkt tófú með sesam, chili og lime úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Matstofu Jónasar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Stökka tófúið er gott eitt og sér með lime og meiri sojasósu en passar líka sérstaklega vel með karrýsósu og hrísgrjónum. Berið það þá fram ofan á hrísgrjónunum, hellið karrýsósunni yfir eða hafið hana til hliðar og klárið með fersku kóríander, chili og lime. Ekki vera hrædd við að brúna tófúið vel. Það má fá almennilegan lit – stökkir, vel brúnaðir kantar gefa bæði meira bragð og betri áferð.
Tófú er besta próteinið samkvæmt BPI Score eða Better Protein Index. Nánar um það hér.
Hráefni:
- 500 g þétt tófú
- 2 msk sojasósa eða tamari
- 1 msk sesamolía
- safi úr 1 lime
- 1 msk hlynsíróp eða hunang
- 2 hvítlauksgeirar, fínt rifnir
- 1–2 tsk ferskt engifer, fínt rifið
- 1 tsk chiliflögur, eða eftir smekk
- 2 msk maíssterkja má líka vera hvaða mjöl sem er
- 1–2 msk olía til steikingar eða bökunar
Til að klára:
- 1 msk ristuð sesamfræ
- 1 vorlaukur, fínt skorinn
- ferskt chili, þunnt skorið
- ferskt kóríander
- limebátar
Aðferð:
- Þerrið tófúið vel og pressið úr því umframvökva. Rífið það með höndunum í grófa, óreglulega bita frekar en að skera það í teninga. Þannig myndast fleiri kantar sem verða stökkir við eldun.
- Blandið saman sojasósu, sesamolíu, limesafa, hlynsírópi, hvítlauk, engifer og chili. Veltið tófúinu varlega upp úr blöndunni og látið standa í 10–15 mínútur.
- Stráið maíssterkjunni yfir og veltið aftur þar til þunn húð hefur myndast utan um bitana.
- Í ofni: Dreifið tófúinu á bökunarpappír, dreypið örlítilli olíu yfir og bakið við 220°C í 20–25 mínútur, eða þar til það er dökkgullið og stökkt. Snúið bitunum einu sinni á meðan.
- Á pönnu: Hitið olíu á pönnu og steikið tófúið við meðalháan hita þar til það er stökkt og vel brúnað á öllum hliðum.
- Setjið á disk og klárið með ristuðum sesamfræjum, vorlauk, fersku chili og kóríander. Berið fram með limebátum.
Verði ykkur að góðu!