Silungur, smjörbaunir og límóna

Ofnbakaður silungur með hunangi og límónuberki ásamt smjörbaunum með engifer, hvítlauk og límónusafa. Einfalt, fljótlegt og gott.

Fiskurinn:

  • 600 g silungur
  • Hunang
  • 1 límónubörkur

Aðferð:

  1. Roðdragið silunginn og þerrið fiskinn vel.
  2. Setjið 1-2 tsk af hunangi ofan á fiskinn og dreifið jafn yfir með höndunum. Rífið börk af límónu jafn yfir fiskinn.
  3. Bakið við 200 gráður í 10-14 mínútur.

Baunasalat:

  • 2 dósir nýrnabaunir
  • 2 hvítlauksrif
  • 1/2-1 rauður chili
  • Vænn bútur af engifer
  • Ólífuolía
  • Límónusafi

Aðferð:

  1. Saxið hvítlauk og chili og rífið engifer. Setjið væna slettu af olíu í pott og hitið með kryddinu.
  2. Takið af hitanum. Bætið við baunum og safa úr límónunni sem notuð var á fiskinn. Hrærið öllu saman.
  3. Eldið þetta í ofni með silungnum.
  4. Skreytið með límónum og fersku kryddi ef það er til. Gott að hafa ferskt salat á kantinum.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Stökkt tófú með sesam, chili og lime

Tófú „besta“ próteinið – Uppskrift

Lax, kjúklingabaunir, harissa og feta