Einfalt malasískt karrý

Talsvert einfölduð uppskrift af malasískum gaeng panaeng gai eða chicken panang curry. Vitanlega má nota hvaða prótein sem er. Tófú, baunir, ost, kjúkling eða hvað sem hugurinn girnist. Hægt að nota frosnar grænar baunir í stað strengjabauna eða annað sem til er í skápnum. Passar ágætlega fyrir fjóra. Hægt að drýgja þennan rétt verulega með hrísgrjónum.

Malasískt karrý:

  • 800 g tófú eða annað prótein
  • 2 msk hnetuolía
  • 2 dósir kókosmjólk
  • 3 msk rautt karrý paste
  • 2 msk pálmasykur eða hunang
  • 2 msk fish sauce
  • 1 límóna
  • Væn lúka basilíka
  • 80 g ristaðar kasjúhnetur
  • 2 rauð chili

Aðferð:

  1. Skerið próteinið í hæfilega bita og steikið í hæfilegum skömmtum á pönnu eða pottjárnspotti. Veiðið upp úr geymið.
  2. Hitið kókosmjólk, karrý, sætu, fiskisósu, límónubörk og safa í sama potti. Sjóðið niður í um 15 mínútur.
  3. Bætið próteininu við ásamt baunum og helmingnum af basilíkunni. Látið malla í 5 mínútur.
  4. Setjið á fat og toppið með basilíku, chili og hnetum.

Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius

Related posts

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime

Tófú „besta“ próteinið – Uppskrift