Vel brúnað blómkál er í miklu uppáhaldi hjá mér. Það verður smjörmjúkt og einstaklega bragðmikið og fer vel með silkimjúku smjörbaunamauki með sítrónu. Kapersdressingin með steinselju og skalottlauk fullkomnar svo réttinn. Uppskriftin er fyrir tvo.
Blómkál:
- 1 stór blómkálshaus
- Nokkrar greinar af fersku timjani
- Góður biti af smjöri
- Ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar
Smjörbaunamauk:
- 1 dós smjörbaunir eða aðrar hvítar baunir
- 1 msk sítrónusafi
- 1 msk ólífuolía
- Svolítill vökvi af baununum, til þynningar eftir þörfum
- Salt og pipar
Kapersdressing:
- 2 msk kapers
- 2 msk steinselja, skoluð og söxuð
- ½ skalottlaukur, fínsaxaður
- 2 msk ólífuolía
- 2 hvítlauksrif, marin
Aðferð:
- Skerið tvær um 2–3 cm þykkar sneiðar úr miðju blómkálshaussins, ofan frá og niður í gegnum stöngulinn. Geymið afskurðinn í annan rétt.
- Hitið svolitla ólífuolíu á þykkbotna pönnu við meðalhita. Leggið blómkálssneiðarnar á pönnuna og steikið þar til þær eru gullinbrúnar að neðan. Snúið þeim við, lækkið hitann og bætið smjöri, timjani, salti og pipar á pönnuna. Steikið áfram við lágan hita þar til blómkálið er meyrt og hnífsoddur gengur auðveldlega í gegnum það.
- Hellið vökvanum af baununum og geymið hann til þynningar. Skolið baunirnar og látið renna vel af þeim. Setjið þær í öflugan blandara ásamt sítrónusafa og ólífuolíu. Maukið þar til áferðin er alveg slétt. Bætið svolitlu af geymda baunavökvanum út í eftir þörfum þar til maukið hefur hæfilega þykkt. Smakkið til með salti og pipar.
- Gerið dressingu með því að blanda kapers, steinselju, skalottlauk og hvítlauk saman við ólífuolíuna.
- Dreifið baunamaukinu á tvo diska, leggið blómkálssneiðarnar ofan á og setjið kapersdressinguna yfir.
Verði ykkur að góðu!