Bragðmikil tómatsúpa

Matgæðingurinn Kristín Pálmadóttir Thorlacius bauð upp á þessa ljúffengu og bragðmiklu tómatsúpu. Uppskriftin passar ágætlega fyrir sex með góðu brauði á kantinum.

Tómatsúpa:

  • 16 tómatar
  • 2 rauðar paprikur
  • 1 stór laukur
  • 2 heilir hvítlaukar, þverskornir
  • 2 msk olía
  • 1 msk balsamik edik
  • 1 tsk paprikuduft
  • 1 tsk óreganó
  • 1 tsk chili flögur
  • Salt og pipar
  • 1/2 lítri grænmetissoð
  • Basilíka
  • 3 msk tómatpúrra
  • 100 ml kókosmjólk

Aðferð:

  1. Setjið grænmeti, olíu, edik og krydd í eldfast fat. Bakið í klukkutíma við 200 gráður eða aðeins lengur til að grænmetið sé vel bakað. Hrærið í grænmetinu einu sinni eða tvisvar á meðan það eldast.
  2. Setjið grænmetið í pott með soði, lúku af basilíku og tómatpúrru. Blandið með töfrasprota og leyfið þessu að malla aðeins. Kókosmjólk er sett í blálokin eða rjómi fyrir þá sem það vilja.
  3. Súpan sett á disk og skreytt með ferskri basilíku og góðri ólífuolíu. Gott að hafa grillað ostabrauð með súpunni.

Verði ykkur að góðu!

Mynd: Pálmi Jónasson

Related posts

Hörpuskel með byggottó og smjörsósu

Blómkál – Eitt hráefni – Margar leiðir

Leyndarmálið er í dressingunni