Matgæðingurinn Gunnar Axel Böðvarsson á heiðurinn af þessari hörpuskel með byggottó og smjörsósu eða beurre blanc. Sérlega bragðgott og ekki eins flókið og virðist við fyrstu sýn.
Byggottó:
- 180 g bankabygg
- Smjör
- Ólífuolía
- Skalottulaukur
- Hvítvín
- Soð
Aðferð:
- Þetta er í raun eldað eins og risottó. Bankabygg og skalottulaukur léttsteikt í olíu og smjöri. Hvítvíni helt út á og látið sjóða niður. Soði bætt við í skömmtum og látið malla þar til byggið er „al dente“.
Hörpuskel:
- Hörpuskel
- Avókadó olía
- Smjör
Aðferð:
- Þerrið hörpuskelina vel og brúnið fallega í avókadó olíu. Bætið smjöri við í lokin og ausið yfir hörpudiskinn.
Beurre blanc:
- 200 g kalt smjör
- 200 ml hvítvín
- 1 sítróna, safinn
- 50 g mascarpone ostur
- Kapers
Aðferð:
- Notið pönnuna sem hörpudiskurinn var steiktur á. Hellið hvítvíni og sítrónusafa á pönnuna og sjóðið aðeins niður. Notuð var safi úr heilli sítrónu með Gewürztraminer hvítvíni en þarf varla svo mikið með hefðbundnu Sauvignon blanc. Hér má líka bæta við smávegis af soði fyrir þá sem það vilja.
- Í lokinn er settur mascarpone ostur við stofuhita og vel þerrað kapers.
Græn olía:
- Ferskar kryddjurtir
- Avókadó olía
Aðferð:
- Notið vel af þeim kryddjurtum sem ykkur líkar og eru til í eldhúsinu eins og kóríander, dill og basilíka.
- Sjóðið eða blanserið kryddið í saltvatni í 20 sekúndur og setjið svo í klakabað í 40 sekúndur.
- Kreistið vatnið af kryddjurtunum setjið í blandara með avókadó olíu. Hellið í gegnum taubleyju í skál.
- Byggottó fer neðst í skál með sósunni. Hörpudiskur er efst og ferskt dill og kryddolía til að gera réttinn glæsilegan.
Myndir: Gunnar Axel Böðvarsson