Pistasíuhjúpuð seljurót með basilmauki

Pistasíuhjúpuð seljurót með basilmauki úr smiðju Halldórs Steinsson á Heilsustofnun Náttúrlækningafélagsins í Hveragerði. Gott með villisveppasósu, ofnsteiktum kartöflum og blómkáli.

Pistasíuhjúpuð seljurót:

  • 1 stór seljurót
  • 3 egg
  • Pistasíuhnetur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Seljurótin er hreinsuð og skorin í sneiðar og soðin í 5-7 mínútur í léttsöltu vatni
  2. Sneiðarnar eru þerraðar á pappír og látnar kólna. 
  3. Eggin eru pískuð í skál með smá salti og pipar og hneturnar malaðar fínt í matvinnsluvél.
  4. Fallegt er að skera sneiðarnar út í ferhyrning eða hring og væta svo í egginu og hjúpa í hnetunum.
  5. Ofninn hitaður í 180°C og sneiðarnar settar á bakka með smjörpappír undir og bakað í 12 mínútur eða lengur, fer allt eftir þykkt sneiðanna.

Basilmauk:

  • 2-3 dl. góð ólífuolía
  • 1 box basil
  • 300 gr kasjúhnetur
  • 3 geirar hvítlaukur
  • Smá sítrónusafi

Aðferð:

Allt sett í blandara og unnið í mauk.

Villisveppasósa:

  • 2 lúkur af þurrkuðum villisveppum lagðir í bleyti
  • 1 laukur smátt saxaður
  • 1 sellerí stilkur
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 5 stk. sólþurrkaðir tómatar
  • 1 tsk. timjan
  • 1 tsk. rósmarín
  • 250 ml.  grænmetissoð
  • 250 ml. kókosmjólk
  • 1 lúka söxuð steinselja

Aðferð:

  1. Villisveppirnir lagðir í bleyti.
  2. Léttsteikið lau, sellerí og hvítlauk í smávegis af olíu í potti. Bætið við tómötum og villisveppum með svolitlu af sveppavatninu. Öllu öðru bætt við og látið malla við vægan hita í 10 mínútur. Maukað með töfrasprota og ef þið viljið þykkja sósuna má nota maísmjöl, kartöflur eða hveitijafning.

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime