Morgunmatur fyrir ofurhetjur

Hinn fullkomni morgunmatur úr smiðju Jóhönnu S. Hannesdóttur sem haf út bókina 100 heilsuráð til langlífis. Þessi er algjörlega sykurlaus.

Hafragrautur:

  • 1/2 bolli gróft haframjöl
  • 1 msk chiafræ

  • 1 bolli möndlumjólk
  • 1/2 tsk lífræn vanilla
  • Sjávarsalt
  • 1 msk möndlusmjör (má sleppa)

Á toppinn:

  • 2 msk hempfræ
  • 1/4 tsk kanill
  • 1/3 bolli möndlur, saxaðar
  • 1 tsk acaiduft
bláber eða önnur ber (má sleppa)

Aðferð:

  1. Kvöldið áður er haframjöl, möndlumjólk og chiafræ sett í stóra glerkrukku. Blandið saman með skeið, setjið lokið á og setjið krukkuna síðan inn í ísskáp og geymið yfir nótt.

  2. Takið krukkuna úr ísskápnum og setjið möndlusmjörið, vanilluna og sjávarsaltið í krukkuna og blandið vel.

  3. Ef þið viljið taka grautinn með ykkur í nestið þá setjið þið restina af hráefninu í krukkuna. Ef þið viljið njóta þess að borða grautinn í rólegheitunum heima hjá ykkur þá setjið þið grautinn á disk og dreifið restinni af hráefninu yfir grautinn.

Related posts

Tófú „besta“ próteinið – Uppskrift

Lax, kjúklingabaunir, harissa og feta

Egg & Kotasæla fyrir einn