Döðlukaka

Döðlukaka með engum viðbættum sykri eða hveiti. Við notum sykulaust súkkulaði. Þessi er úr Uppskriftarbók Heilsustofnar NLFÍ.

Döðlukaka:

  • 4 stk þeyttar eggjahvítur
  • 1 dl döðlumauk (döðlur, hitaðar og maukaðar)
  • 2 dl saxaðar döðlur
  • 2 dl möndlukurl

Aðferð:

  1. Einni þeyttri eggjahvítu er blandað vel saman við döðlumaukið, saxaðar döðlur og möndlukurl með sleikju. Hinum eggjahvítunum er svo blandað varlega saman við.
  2. Sett í smurt form og bakað við 170 gráður í 15-20 mínútur.

Hjúpur:

  • 70 g kókosmjólk
  • 70 g súkkulaði

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina og bræðið súkkulaðið í mjólkinni.
  2. Gott að setja 3-4 sneidda banana yfir kældan botninn og hjúpinn yfir köku og banana.

Related posts

Tófú „besta“ próteinið – Uppskrift

Lax, kjúklingabaunir, harissa og feta

Egg & Kotasæla fyrir einn