Klassískt guacamole

Guacamole er bragðgott og hollt meðlæti með mexíkóskum réttum eða bara á brauðsneið. Þessi einfalda og góða uppskrift kemur úr smiðju Halldórs kokks á Heilsustofnun NLFÍ og hún svíkur engan.

Þú þarft:

  • 2 avókadó
  • 2 tómatar í bitum
  • 6 fínt saxaðir vorlaukar
  • 2 msk lime safi
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Setjið avókadóið í skál og stappið með gaffli. Bætið öllu saman við og hrærið vel.
  2. Einnig má bæta út í ½ líter af AB- mjólk sem búið er að sigta yfir nótt í gegnum síudúk eða kaffifilter.

Mynd: Pixabay

Related posts

Fræbrauð með trönuberjum

Döðlukaka með valhnetum

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu