Granólastykki er gott dæmi um hollustu sem er margfalt hollara en mikið af þeim hollustustykkjum sem fást í matvörubúðum.
Granólastykki:
- 160 g tröllahafragrautur
- 40 g Kellogg´s kornflögur
- 2 msk chiafræ
- 2 msk hörfræ
- 35 g graskersfræ
- 25 g saxaðar möndlur
- 60 g möndlusmjör
- 120 g hunang
- 2 msk dökkt súkkulaði í bitum
Aðferð:
- Blandið hafragraut, kornflögum, fræjum, súkkulaði og möndlum í skál.
- Hitið hunang og möndlusmjör í 45 sekúndur í örbylgjuofni og hellið yfir blönduna í skálinni.
- Blandið vel saman og setjið á plötu með bökunarpappír og þrýstið létt niður.
- Þetta er svo sett í frysti í 30 mínútur. Skerið síðan í hentuga bita.
Verði ykkur að góðu!