„Ketildalir – Gimsteinar Arnarfjarðar“ er yfirskrift ljósmyndasýningar Tómasar Guðbjartssonar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þar má sjá Nónhorn við Hvestudal, Tjaldanesfjöll, Litla og Stóra Hrút séð frá Keili, hnúfubak að stinga sér í Arnarfjörð og toppskarfa í vetrarsól svo eitthvað sé nefnt. Tómas hefur gefið Heilsustofnun myndirnar með þakklæti fyrir frábæra dvöl en hann þurfti sjálfur að nýta sér þjónustu Heilsustofnunar fyrr á árinu.
„Ég hef lengi látið mig dreyma um að halda sýningu með ljósmyndum frá Ketildölum við sunnanverðan Arnarfjörð,“ segir Tómas Guðbjartsson. „Markmið mitt er fyrst og fremst að kynna ótrúlega náttúrufegurð þessa fáfarna svæðis en um leið er það von mín að komandi kynslóðir fái að njóta þessa fjársjóðar sem lítt snortnir Ketildalir eru.“
Myndirnar eru til sýnis í Kringlunni á Heilsustofnun og eru allir velkomnir að líta við og sjá sýninguna
Ljósmyndir úr opnunarathöfn: Guðmundur Kristinn Jóhannesson