Brokkólíspírur bornar fram með rauðrófudressingu sem er gert úr valhnetum og misó. Þar mætast litur og mýkt dressingarinnar og fíngerð áferð spíranna. Dressingin er sett undir spírurnar svo þær haldi sínu yfirbragði og týnist ekki. Rauðrófudressing með valhnetum og misó hefur fallegan lit og mjúka áferð. Berið dressinguna fram með spírunum eða dreypið henni yfir rétt áður en borið er fram. Ég hafði dressinguna frekar þykka í þetta skiptið og notaði hana meira sem krem undir spírurnar. Undirbúningurinn tekur varla nema 10 mínútur auk bleytingu hnetanna. Þyngd hnetanna og fræjanna miðast við þurrt hráefni fyrir bleytingu. Nota má töfrasprota í háu, mjóu íláti en dressingin verður þá gjarnan örlítið grófari.
Brokkólíspírur:
- 120 g valhnetur, eða 140 g kasjúhnetur eða sólblómafræ
- 85 g soðnar rauðrófur, saxaðar
- 90 g sítrónusafi
- 2 lítil hvítlauksrif
- 24 g hvítt misó
- 80 g vatn, auk meira eftir þörfum
- Salt og nýmalaður svartur pipar
- Brokkólíspírur frá Eco spíra eftir fjölda gesta og smekk
Aðferð:
- Hellið vatni yfir hneturnar eða fræin og látið standa yfir nótt í kæli. Einnig má nota heitt vatn og láta standa í að minnsta kosti 15 mínútur, þar til þær hafa mýkst. Hellið vatninu af, skolið og látið renna vel af.
- Setjið allt hráefnið í blandara og maukið þar til dressingin er alveg slétt. Skafið niður með hliðunum eftir þörfum.
- Bætið við vatni, um 15 g í einu, þar til dressingin er hæfilega fljótandi.
- Stillið bragðið með sítrónusafa, misó, salti og pipar. Misóið er salt, svo smakkið áður en salti er bætt við.
- Penslið dressingunni á disk og setjið brokkólíspírurnar ofan á.
Verði ykkur að góðu!