Steinbítur, gulrætur og remúlaði

Pönnusteiktur steinbítur með gljáðum gulrótum og heimagerðu remúlaði. Einfalt, gott og fljótlegt. Uppskriftin passar fyrir fjóra. Gott að byrja á remúlaðinu og láta það taka sig í ísskáp. Graslaukinn má nýta sem skreytingu á fisk, gulrætur og remúlaði.

Fiskurinn:

  • 800 g steinbítur
  • 1 egg
  • Salt og pipar
  • Pankó raspur
  • Smjör og olía

Aðferð:

  1. Þerrið fiskinn vel og skerið í hæfilega bita.
  2. Þeytið egg og kryddið það með salti og pipar. Veltið fiskinum í egginu og svo pankó raspinum.
  3. Steikið fallega brúnt á pönnu.

Remúlaði:

  • 200 g grískt jógúrt
  • 3 msk kapers
  • 3 msk graslaukur
  • 3 ansjósuflök
  • 1 msk túrmerik
  • 1 tsk hunang
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Saxið kapers, graslauk og ansjósur. Öllu blandað saman í skál og geymt í ísskáp fram að notkun.

Gulrætur:

  • 800 g gulrætur
  • Smjör og hunang

Aðferð:

  1. Sjóðið gulrætur aðeins og látið þær svo þorna aðeins í sigti. Þær eiga að vera „al dente“.
  2. Setjið þær í eldfast fat með smjöri og hunangi. Brúnið í ofni við 180-200 gráður á meðan fiskurinn er steiktur.

Verði ykkur að góðu!

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Grasker – Meira en hrekkjavökuskraut

Pönnusteikt blómkál með smjörbaunamauki og kapersdressingu

Spírur – Meira en bara skraut á disknum