Bakaðar rauðrófur með piparrót og kasjúhnetudressingu

Bakaðar rauðrófur með piparrót og kasjúhnetudressingu er dásamlegt meðlæti úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Hér er gert ráð fyrir að rauðrófan sé stór en annars þarf 2-3 litlar.

Rauðrófur

  • 1 rauðrófa
  • Þumall af piparrót

Aðferð:

  1. Bakið rauðrófuna heila í ofni við 170 gráður í 40-60 mínútur eftir stærð.
  2. Takið hýðið af þegar þær hafa kólna og skerið hana í hæfilega bita.

Kasjúhnetudressing

  • 250 g kasjúhnetur
  • Ólífuolía
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • Ferskt krydd
  • 2 hvítlauksgeirar
  • Salt

Aðferð:

  1. Ristið hneturnar í ofni.
  2. Notið það ferska krydd sem þið eigið eða líkar, t.d. kóríander, steinselju eða basil. Setjið hnetur í blandara með olíu þannig að fljóti yfir. Bætið hinum innihaldsefnunum við og vinnið þetta vel saman.
  3. Hellið þessu yfir rauðrófuna og rífið piparrótina yfir.

Mynd: Halldór Steinsson

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime