Za´atar gulrætur með þeyttum fetaosti

Gulrætur með þeyttum fetaosti frá Halldóri Steinsson á Matstofu Jónasar í Hveragerði. Za´atar er blanda af mismunandi kryddum eftir því í hvaða hluta miðausturlanda er miðað við, en oftast eru það oreganó, timjan, kóríanderfræ, ristuð sesamfræ og sumac sem gera þessa frægu kryddblöndu. Notið jurta fetaost og jurta jógúrt til að hafa þetta vegan.

Þú þarft:

  • 500 g gulrætur
  • 3 msk ólífuolía
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1 msk za´atar krydd
  • 1/4 tsk cummin
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Öllu blandað vel saman og bakað í ofni á 200 gráðum í um 30 mínútur. Hræra í þessu eftir 15 mínútur til þess að það bakist jafnt.

Þeyttur fetaostur:

  • 1 krukka eða kubbur af fetaosti
  • 2 msk grísk jógúrt
  • 1 appelsína, börkurinn
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Steinselja

Aðferð:

  1. Þeytið saman jógúrt og fetaost með handpískara eða í blandara með smá ólífuolíu, salti og pipar þangað til mjúkt og fínt.
  2. Smyrjið þessu á disk og toppið með Za´atar gulrótunum, fínt rifnum appelsínuberki, meiri ólífuolíu og steinselju.

Mynd: Halldór Steinsson

Halldór Steinsson, matreiðlsumeistari

Related posts

„Endurhæfing lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi“

Fjögurra ára þjónustusamningur

Starfsemi Heilsustofnunar tryggð til 2030