Sykurbaunasalat með lárperum

Sykurbaunasalat með lárperum úr smiðju Halldórs Steinsson á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Sykurbaunir eru einstaklega ríkar af C-vítamíni, B-vítamíni, K-vítamíni og járni. Lárperan er frábær fitugjafi (rík af einómettuðum fitutsýrum) og trefjum. Sumac er mikið notað í Líbanon, Ísrael, Palestínu og Tyrklandi en einnig við Miðjarðarhafið og Norður Afríku. 

Salat:

  • 1 pakki sykurbaunir, skornar í litla bita
  • 2 gúrkur skornar í litla bita
  • 4 radísur í litlum bitum
  • 1 shallot laukur fínsaxaður
  • Handfylli saxaður ferskur basil
  • Handfylli söxuð steinselja
  • 1 chili fræhreinsaður og fínsaxaður
  • 1 lárpera í teningum

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman.

Dressing:

  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1 tsk sumac
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Safi úr ½ límónu
  • 3 msk ólífuolía

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman.

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime