Í mínum huga inniheldur hin fullkomna dressing súrt, biturt, salt og sætt bragð. Ef þú ert að prófa þig áfram í saltasósum getur oft verið gott að hafa þetta í huga við val á hráefni og finna það magn sem myndar jafnvægi milli þeirra. Smellpassar með salati en er einnig góð á hrísgrjón, quinoa eða annað korn.
Þú þarft:
- 1 box mynta (15gr)
- 1 box kóreander (15gr)
- 4 döðlur
- 1-2 tsk hrísgrjónaedik
- 1/2 tsk tamari sósa
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1 dl vatn
- 1 msk kaldpressuð ólífuolía
- handfylli rauð vínber
- hnífsoddur salt
Aðferð:
- Blandið öllu saman í blandara.