Salat með rauðkáli og granateplum

Litríkt og næringarríkt salat úr smiðju Halldórs Steinsson á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Gott eitt og sér eða meðlæti með nánast hverju sem er. Granatepli eru trefjarík með miklu af C og K vítamíni.

Þú þarft:

  • 1/2 rauðkál skorið í litla bita
  • 1 agúrka skorin í litla teninga
  • 2 tómatar skornir í litla bita
  • 100 gr söxuð steinselja
  • 30 g saxað dill
  • 100 g granateplakjarnar
  • safi úr einni sítrónu
  • 4 msk ólífuolía
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman og berið fram.

Related posts

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!

Áhrif umhverfis á andlega heilsu