Hnetusteik

Vegan- og grænmetisfæði verður sífellt vinsælla hér á landi. Hér er uppskrift af ljúffengri hnetusteik úr smiðju Halldórs Steinssonar matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þessi uppskrift er ekki vegan því hún inniheldur egg, en hægt er skipta eggjunum út fyrir eplamauk eða maukaða banana til að gera uppskriftina veganvæna.

Þú þarft:

  • 1-2 hvítlauksrif, söxuð
  • 100 g sellerírót, skorin í teninga
  • 200 g gulrætur, skornar í teninga
  • 200 g laukur, saxaður
  • 100 g cashewhnetur, saxaðar
  • 50 g möndlur, saxaðar
  • 100 g heslihnetur, saxaðar
  • 6 egg
  • 350 g soðið bygg
  • 1 tsk túrmerik
  • 3 msk sojasósa
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt hrært saman, smakkað til með salti og pipar og sett í eldfast mót.
  2. Álpappír er settur yfir og bakað í ofni við 180°C í 30 mínútur. Álpappírinn er svo tekinn af og steikin er bökuð í 10-15 mínútur í viðbót.
  3. Hægt er að bæta bragðbæta steikina með því að setja BBQ sósu ofan á.

Halldór Steinsson yfirmatreiðslumaður hjá Heilsustofnun NLFÍ

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime