Heilbrigður meltingarvegur er grunnur að góðri heilsu

Birna G. Ásbjörnsdóttir

Í dag vitum við að heilbrigður meltingarvegur er grunnur að góðri heilsu. Orsök ýmissa sjúkdóma má rekja til ójafnvægis í meltingarvegi eða þarmaflórunni og frásog næringarefna veltur meðal annars á samsetningu þarmaflórunnar. Þarmaflóran samanstendur af örverum og framleiðir meðal annars orku, amínósýrur, B og K vítamín og stuttkeðju fitusýrur. Einnig hjálpar hún við upptöku á vítamínum og steinefnum, þjálfar ónæmiskerfið og eflir með því að keppa við sýkla um pláss.

Þarmaflóran hefur áhrif á heilsu okkar og heilbrigði, ekki eingöngu í meltingarveginum sjálfum. Rannsóknum hefur fleygt fram á síðust árum sem sýna æ betur hversu mikilvægu hlutverki þarmaflóran gegnir hvað varðar líkamlega og andlega heilsu.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að þarmaflóran er jafn mikilvæg heilbrigðri líkamsstarfsemi og hvert annað líffæri. Ef ójafnvægi myndast í flórunni getur það leitt til ýmissa kvilla, bæði í meltingarvegi og víðar í líkama. Ójafnvægi getur haft áhrif á frumur í þörumunum og leitt til aukins gegndræpis. Aukið gegndræpi þarma eykur líkur á að ýmsir óæskilegir þættir komist frá meltingarvegi út í líkamann. Afleiðingar geta leitt til ýmissa einkenna og jafnvel langvinnra bólgusjúkdóma.

Góðgerlar eru örverur sem hafa jákvæð áhrif á heilsu manna með því að bæta og efla þarmaflóruna. Góðgerlar hafa lífeðlisfræðileg áhrif sem geta eflt meltingu og dregið úr ýmsum óþægindum í meltingarvegi. Þeir efla niðurbrot fæðunnar og uppsog næringarefna, styrkja ónæmiskerfið og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru og heilbrigðum meltingarvegi.

Góðgerlar hafa verið rannsakaðir í tengslum við heilsu og ýmsa sjúkdóma. Rannsóknir sýna að það er öruggt að taka inn góðgerla, það þolist yfirleitt vel og hentar til langs tíma. Mismunandi tegundir góðgerla geta haft mismunandi áhrif í meltingarveginum og á líkamann. Stöðugt fleiri rannsóknir hafa sýnt fram á hversu sértæk áhrif góðgerla hafa á heilsu fólks. Þeir geta til að mynda styrkt og hlúð að þarmaflórunni eftir inntöku sýklalyfja, auk þess að draga úr líkum á sýkingum þar sem þeir efla varnir líkamans. Rannsóknir hafa sömuleiðis sýnt að þeir draga úr einkennum og tíðni iðraólgu, halda óvinveittum sýklum í skefjum og draga úr viðloðun slæmra baktería í meltingarvegi. Góðgerlar efla framleiðslu á mikilvægum efnum í slímhúð þarmanna sem kemur í veg fyrir að sýklar nái að hreiðra um sig, draga úr fjölgun sýkla og auka þar með hlutfall annarra hagstæðra góðgerla í þörmunum.

Birna G. Ásbjörnsdóttir er stofnandi og eigandi Jörth.

Related posts

Skvísur uppfylla ekki næringarviðmið

Sellerírót – Úr aukahlutverki í aðalrétt

Grasker – Meira en hrekkjavökuskraut