Gulrótasúpa með kókosmjólk og engifer

Gómsæt og mjög næringarrík gulrótasúpa. Hún er góð með sýrðum rjóma og góðu brauði og getum við mælt með þessu orkubrauði.

Gulrótasúpa:

  • 600 g smátt skornar gulrætur
  • 4 tómatar
  • ½ L vatn
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 laukur
  • 1-2 hvítlauksgeirar, smátt skornir
  • Handfylli af kóríander, smátt skorið
  • Engiferrót 3 cm, rifin niður
  • 2 msk grænmetiskraftur
  • 1 tsk túrmerik
  • 1 tsk cumin
  • Olía til steikingar
  • Handfylli af kóríander, smátt saxað
  • Sítrónusafi að smekk
  • Cheyenne pipar að smekk
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Gulrætur eru skornar smátt og léttsteiktar á pönnu ásamt lauk, hvítlauknum, túrmerik og cumin. Engiferið er rifið og látið malla með. Því næst eru vatninu og grænmetiskrafti bætt við og látið sjóða í 20 mín, þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar. Því næst eru tómatarnir saxaðir og bætt við ásamt kókosmjólkinni, salti og pipar.
  2. Súpan er svo maukuð með töfrasprota og smökkuð til með sítrónusafanum og ferskum kóríander.
  3. Súpan er látin standa og þykkist þá, áður en hún er borin fram.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli