Orkubrauð

Solla á Gló deildi uppskrift af ofurhollu orkubrauði með okkur. Þetta brauð er uppfullt af vítamínum, steinefnum og trefjum. Gerið heilsu ykkar greiða og skellið í þetta orkubrauð. Brauðið geymist í 5-7 daga í kæli. Einnig hægt að frysta en þá er best að skera það niður fyrst.

Orkubrauð:

  • 2 bollar tröllahafrar
  • 1 bolli graskersfræ
  • 1 bolli sólblómafræ
  • 1 bolli hörfræ
  • 1 bolli möndlur, gróft saxaðar
  • 1 bolli kókosmjöl
  • ½ bolli psyllum husk
  • ¼ bolli chiafræ
  • 2 msk möluð chiafræ
  • 1 ½ – 2 msk. kúmenfræ
  • 1- 2 tsk salt
  • 3 bollar vatn
  • ¼ bollar kókosolía
  • 2 msk hunang 

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnin saman í skál og blandið saman. Bætið öllu hinu við og blandið vel saman.
  2. Látið standa í 30-45 mínútur við stofuhita áður en þið bakið eða yfir nótt.
  3. Bakið við 175°C í 30 mínútur, takið brauðið úr forminu og klárið að baka það í 30 mín. Kælið alveg áður en þið skerið það.
  4. Gott er að setja brauðið í kæli.



Related posts

Blómkálsklattar með hnetusósu

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!