Eggaldin í parmesanhjúp með tómat og basil

Eggaldin í parmesanhjúp með tómat og basil er úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumanns á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Eggaldin eru mjög næringarrík og þetta er því uppskrift sem stuðlar að betra heilbrigði og bætir bragðlaukana.

Þú þarft:

  • 1 eggaldin
  • 2 pískuð egg
  • Smá heilhveiti
  • Brauðrasp
  • Parmesan
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið eggaldin í sneiðar og saltið báðar hliðar. Látið saltið þurrka eggaldinið í um 10 mínútur. Þurrkið svo sneiðarnar með pappír og leggið þær í heilhveiti svo það loði við báðar hliðar. Setjið sneiðarnar í eggjablönduna og því næsta brauðrasp og parmesan sem er blandað saman til helminga.
  2. Steikt í olíu á pönnu í um tvær mínútur á hvorri hlið.

Tómatbasilsósa:

  • 2 msk ólífuolía
  • 1 saxaður laukur
  • 1 box basil
  • 1 dós tómatar
  • 10 sólþurrkaðir tómatar
  • 4-5 hvítlauksrif
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Laukurinn léttsteiktur í olíunni á pönnu. Bætið við tómötum og hvítlauk og látið malla í 10-12 mínútur.
  2. Maukið með töfrasprota og bætið basil við í lokin.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí