Linsubauna Bolognese

Ítalskt bolognese er yfirleitt gert úr nauti, svíni eða kálfakjöti en hér eru linsubaunir í aðalhlutverki. Uppskriftin er upphaflega komin frá Nico Pallotta og Louise Vestergaard hjá The Plant Based School en er hér í aðeins breyttri útgáfu. Það er ekkert heilagt við hráefnin. Notið það sem þið eigið í skápnum. Uppskriftin passar fyrir sex og ekki verra að hafa baguette brauð á kantinum.

Bolognese:

  • 2-3 msk olía
  • 1 laukur
  • 2 gulrætur
  • 1 sellerístöngull
  • 2 hvítlauksrif
  • 100 g sveppir
  • 1 tómatdós
  • 1 msk tómatpúrra
  • 2 dl grænmetissoð
  • 1 dl rauðvín
  • 2 dósir linsubaunir
  • Salt og pipar
  • 2 msk balsamic edik
  • 800 g pasta

Aðferð:

  1. Saxið grænmetið og steikið í olíu ásamt skornum sveppum, salti og pipar.
  2. Bætið öðlum hráefnum við og látið malla í korter. Balsamic edikið fer í blálokin.
  3. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum og blandið öllu saman. Skreytið með ferskum kryddjurtum og parmesan eða því sem til er í eldhúsinu.

Verði ykkur að góðu!

Myndir: Pálmi Jónasson og Nico og Louise


Related posts

Baunaspíru ceviche

Brokkólíspírur með rauðrófudressingu

Steinbítur, gulrætur og remúlaði