Veisla í Hússtjórnarskólanum – Myndir

Einbeitni og gleði var ríkjandi á matreiðslunámskeiði í grænmetisfæði á vegum Náttúrulækningafélags Reykjavíkur í Hússtjórnarskólanum 21. maí. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru meistarakokkar á öllum póstum.

Þetta var verklegt matreiðslunámskeið þar sem eldað var gæða grænmetisfæði frá grunni. Unnið var með hreint hráefni, fjölbreytt krydd og mismunandi aðferðir. Mikil áhersla var lögð á heilnæmi matarins, bæði fyrir okkur sjálf og jörðina okkar. Þátttakendur elduðu saman fjölbreytta rétti og settust svo niður í lok námskeiðs og borðuðu saman.

Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og kennari fór á kostum á námskeiðinu. Hún er eigandi Culina sem sinnir fjölbreyttum kennslu og fræðsluverkefnum og var um árabil veisluþjónusta sem sérhæfði sig í grænmetis fæði auk þess að sinna fólki með fæðu óþol eða ofnæmi. Á árum áður var hún Á Næstu Grösum þar sem fjölbreytt grænmetis og grænkerafæði var á boðstólnum.  

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Hollvinasamtök Heilsustofnunar lyfta grettistaki

„Heilsustofnun er algjör paradís“

Gengið til endurhæfingar á Heilsustofnun