Hollvinasamtök Heilsustofnunar keyptu tæki og búnað fyrir rúmar tvær milljónir króna á síðasta ári. Af afrekaskrá síðasta árs má nefna viðhald á reiðhjólum, endurnýjun á pool borði, þrekhjól, hjartastuðtæki, blóðþrýstingsmæli og slökunartæki í sundlaug. Hollvinir keyptu einnig stóla, sófasett, Lazy boy stól og spil til afþreyingar.
Á aðalfundi Hollvinasamtakanna 19. maí var þriggja ára formennsku Ólafs Hjálmarssonar lokið en nýr formaður er Drífa Hjartardóttir. Aðrir í stjórn eru Valdimar Júlíusson, Margrét Grímsdóttir, Ómar Einarsson og Þuríður Guðrún Hauksdóttir.
Samtökin hafa það að leiðarljósi að styrkja starfsemi Heilsustofnunar eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt. Þau eru öllum opin sem áhuga hafa á starfsemi Heilsustofnunar og vilja standa vörð um framtíð hennar. Hollvinir eru 1.057 talsins
Við hvetjum alla þá sem vilja gerast félagar að skrá sig hér. Árgjald í samtökin er einungis 3.500 kr. Heimasíðu Hollvinasamtakanna má sjá hér.
Ingibjörg Jónsdóttir, Ólafur Hjálmarsson, Indriði Helgason, Margrét Grímsdóttir, Þuríður Hauksdóttir, Ómar Einarsson og Valdimar Júlíusson.