Rauðspretta á pönnu

Pönnusteikt rauðsprettuflök eru mikið hnossgæti og má nota á smurbrauð, gjarnan með rækjum og remúlaði eða hvítvíni, kapers, sítrónu og ólífum. Hér er sítróna og parmesan í aðalhlutverki. Uppskriftin er fyrir tvo og með þessu voru kartöflur og grænar baunir. Ferska kryddið var timían eða garðablóðberg að þessu sinni. Smjörið á pönnunni er fínasta sósa. Það má líka sleppa hveitinu og steikja roðið vel stökkt á roðhliðinni áður en flakinu er snúið við í örstutta stund.

Skarkoli, rauðspretta, koli og lúra eru heiti notað um einn og sama flatfiskinn af flyðruætt. Hann lifir við strendur og er algengur á grunnslóð allt í kringum landið. Rauðspretta er komið af danska orðinu rødspætte sem er vegna rauðra díla á roðinu.

Þú þarft:

  • 2 rauðsprettuflök
  • Salt og pipar
  • Hveiti
  • Sítrónubörkur
  • Ferskt krydd
  • Smjör

Aðferð:

  1. Þerrið flökin vel og kryddið með salti, pipar og sítrónuberki.
  2. Veltið upp úr hveiti. Steikið í smjöri á pönnu og byrjið á roðhliðinni.
  3. Bætið við smjöri í lokin og vel af sítrónusafa og þá er komin fínasta sósa.
  4. Borið fram með smjörsósunni af pönnunni, sítrónum, parmesan, fersku kryddi og grænum baunum.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Fiskur & Franskar

Blómkálsklattar með hnetusósu

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“