Alma Möller hrósaði matnum á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar hafur aldrei verið boðið upp á kjöt eða kjötafurðir.
„Mér finnst það bara allt í lagi. Við eigum að takmarka kjötneyslu. Það er auðvitað allt í lagi að borða eitthvað af kjöti en við þurfum að hugsa um að borða ekki allt of mikið af því og við þurfum almennt að auka neyslu grænmetis og ávaxta og trefja. En hér er nú fiskur í boði tvisvar í viku og ég held að fólk hafi almennt bara mjög gott af því að kynnast svona gómsætum grænmetisréttum og jafnvel að læra að matbúa þá.“
Í fréttinni er sagt frá nýjum fjögurra ára þjónustusamningi ríkisins við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar segir að aðsókn í endurhæfingu sé alltaf mikil. „Það er mjög mikil aðsókn og virðist enginn endir vera á henni sem er bæði gott og vont. Við náum að sinna þarna 1.350 manns á ári sem er náttúrulega mjög gott. Við erum bjartsýn og horfum glöð til framtíðar í Hveragerði.“