1350 dvalargestir árlega

www.heilsustofnun.is

Árlegur fjöldi dvalargesta á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði er að jafnaði 1.350. Árið 2025 voru dvalargestir 1.302 en í þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands er gert ráð fyrir 1.350. Fjöldi legudaga var 36.649 en samningurinn miðar við 37.800 legudaga. Fjárveiting á fjárlögum árið 2025 var 1.121 milljónir króna en dvalargestir greiddu samtals 536 milljónir króna, þar af 216 milljónir fyrir meðferðir. Þetta kemur fram í ársskýrslu Heilsustofnunar.

Markmið endurhæfingar á Heilsustofnun er að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, bæta lífsgæði og styrkja viðkomandi til athafna daglegs lífs. Miðað er við 5 tíma í einstaklingsmeðferð og 20 tíma í hópmeðferð á viku. Fjöldi dvalargest er 120 á hverjum degi og meðaldvöl er 4 vikur. Starfsmenn eru um 110 í 90 stöðugildum.

Endurhæfing fer fram á 10 meðferðalínum. Bæklun, geðsjúkdómar, gigtarsjúkdómar, hjarta- og lungnasjúkdómar, krabbamein, offitu- og efnaskiptasjúkdómar, streita og kulnun, taugasjúkdómar, verkir og öldrun. Endurhæfingin er einstaklingshæfð og þverfagleg meðferð fyrir einstaklinga sem þurfa endurhæfingu og þjálfun. Áhersla er lögð á að notendur séu virkir í endurhæfingunni.

Related posts

Framtíðarsýn Heilsustofnunar NLFÍ

Kotasælubuff með sveppasósu

Hærra framlag vegna mikils árangurs