Kotasælubuff með sveppasósu

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði ræður Dóri kokkur ríkjum í eldhúsinu og galdrar þar fram hverja dýrindis máltíðir. Einn vinsælasti rétturinn hefur verið kotasælubuff. Uppskriftin gefur 10 buff og er passlegt fyrir sex með ríflegum skammti af rótargrænmeti og sveppasósu.

Þú þarft:

  • 500 g kotasæla
  • 3 egg
  • 150-200 g brauðrasp
  • 1 lítill laukur
  • 1 tsk timian
  • 1 tsk oreganó
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt hrært saman og mótað í buff. Þetta er nokkuð blautt og það er hægt að velta buffinu upp úr panko raspi áður en það er steikt á pönnu í olíu. Gott að klára buffið í ofni á meðan hugað er að sósunni og grænmetinu.
  2. Gott að bera fram með rótargrænmeti. Á myndinni hér að neðan eru soðnar kartöflur og gulrætur sem eru hitaðar á pönnu eða ofni með smjöri og grófu sinnepi. Sveppasósan var gerð úr einu boxi af sveppum, einum lauk, hvítlauksgeira og kókosrjóma og öllu blandað saman í blandara. Hvítlauksbrauð skaðar engan.

Myndir: Halldór Steinsson og Pálmi Jónasson.

Halldór Steinsson

Related posts

Aðalfundur Náttúrulækningafélags Akureyrar 6. maí

2.1 „Snæringsstaðir í Svínadal“

Eggjakaka með manchego og harissa