Bleikur morgunroði

Þeytingur eða boost að morgni er upplögð leið til að koma deginum af stað. Fer aldrei úr húsi fyrr en eftir tvö væn mjólkurglös af þessum einfalda þeytingi. Nota yfirleitt frosin jarðarber sem ég leyfi að þiðna í korter til að hlífa blandaranum. Innihaldsefnin eru í nokkuð jöfnum hlutföllum en vitanlega má leika sér með innihaldsefnin. Breyta og bæta.

Þeytingur:

  • 1 banani
  • Jarðarber
  • Lífrænn epladjús
  • AB mjólk

Aðferð:

  1. Allt sett í blandara og síðan í glös.

Verði ykkur að góðu!

Myndir: Pálmi Jónasson


Related posts

Linsubauna Bolognese

Baunaspíru ceviche

Brokkólíspírur með rauðrófudressingu