Hærra framlag vegna mikils árangurs

Viðræður standa nú yfir milli fulltrúa Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og Sjúkratrygginga Íslands um þjónustusamning stofnunarinnar við ríkið til lengri tíma. Fyrir liggja góð orð um hækkun framlaga, en stjórnendur stofnunarinnar segja starfsemina vanfjármagnaða og að hún njóti ekki hins sama í framlögum og annað sambærilegt. Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins.

„Það er ánægjuefni að stofnunin verði metin að verðleikum að þessu leyti en brýnt er að Heilsustofnun fái einnig greiðslur til að viðhalda og endurnýja húsnæði sitt í Hveragerði, alls 12.800 fermetra af húsnæði sem starfsemin fer fram í,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri HNLF í blaðinu. Heilsustofnun fékk 1,1 milljarð frá ríkinu árið 2024 samkvæmt þjónustusamningi en dvalargestir borguðu sjálfir 536 milljónir. Í Morgunblaðinu kemur fram að ádráttur um aukin fjárframlög byggi meðal annars á mælingum sem sýna mikinn og góðan árangur. Þórir segir hins vegar að Heilsustofnun fái innan við helming af þeim greiðslum sem aðrir í endurhæfingu fá fyrir sambærilega þjónustu. Þetta misræmi verði að leiðrétta.

Fram kemur að um 1.350 gestir fái endurhæfingu á Heilsustofnun á hverju ári í samræmi við þjónustusamning við Sjúkratryggingar Íslands. Þórir segir allur þorri gesta segi það miklu skipta fyrir góðan árangur að vera í sólarhringsdvöl í Hveragerði í fjórar vikur. „Allir gestir koma samkvæmt tilvísun frá lækni og fá einstaklingsmiðaða og þverfaglega meðferð. Þar er mikið lagt upp úr hæfilegri hreyfingu, útivist í fallegri náttúru, ýmsum vatnsmeðferðum en ekki síður hvíld, núvitund og slökun – ásamt fræðslu og ráðgjöf. Þetta er þjónusta sem fólk í ýmsum fagstéttum heilbrigðisþjónustu veitir, en alls eru starfsmenn stofunnar 110 talsins.“

Árangur meðferðanna er mældur nákvæmlega og sýnir að líkamleg, andleg og félagsleg heilsa batnar verulega. Árangur af verkjameðferð er sérlega mikill og sýna viðurkennd verkjapróf fram á 42 prósent bætingu. „Árangursrík endurhæfing margfaldar lífsgæði viðkomandi einstaklings og eykur einnig lífsgæði aðstandenda þeirra. Ávinningurinn er mikill,“ segir Þórir Haraldsson í Morgunblaðinu.

Mynd: Guðni Ágústsson og Þórir Haraldsson

Related posts

Perusalat með berjum og brie

Aðalfundur Náttúrulækningafélags Akureyrar 6. maí

Eggjakaka með manchego og harissa