„Þörfin fyrir endurhæfingu mun ekki minnka“

„Þörfin fyrir endurhæfingu mun ekki minnka. Þjóðin eldist, fólki með langvinna og fjölþætta sjúkdóma fjölgar og fleiri lifa af alvarleg veikindi og slys og þurfa sérhæfða endurhæfingu í kjölfarið.“ Þetta kemur fram í opnu bréfi frá starfsfólki endurhæfingar- og öldrunarlækningarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, Sigurjóns Þórðarsonar formanns fjárlaganefndar Alþingis og annarra þingmanna. Bréfið er birt í Vikublaðinu.

„Við, starfsfólk endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, köllum eftir skýrri framtíðarsýn stjórnvalda um sérhæfða endurhæfingarþjónustu á Norður- og Austurlandi. Við stöndum á tímamótum. Starfsemi Endurhæfingardeildar SAk á Kristnesi hefur þurft að flytja þaðan vegna ástands húsnæðisins og þjónustan er nú veitt við gjörbreyttar og mun þrengri aðstæður. Þrátt fyrir að starfsfólk leggi sig fram um að tryggja áframhaldandi þjónustu ríkir óvissa um framtíð hennar og með hvaða hætti unnt verður að byggja hana upp að nýju.

Endurhæfing er grundvallarþáttur í heilbrigðisþjónustu og er þjóðfélagslega hagkvæm. Hún gerir fólki á öllum aldri kleift að endurheimta færni, sjálfstæði og lífsgæði eftir veikindi, slys eða áföll. Við fögnum aukinni áherslu stjórnvalda á endurhæfingu sem endurspeglast m.a. í birtri aðgerðaráætlun um heilbrigðistengda endurhæfingu frá september 2021 og heilbrigðisþingi í nóvember á síðasta ári, „Endurhæfing – leiðir til betra lífs“. Orð eru til alls fyrst en betur má ef duga skal.

Þörfin fyrir endurhæfingu mun ekki minnka. Þjóðin eldist, fólki með langvinna og fjölþætta sjúkdóma fjölgar og fleiri lifa af alvarleg veikindi og slys og þurfa sérhæfða endurhæfingu í kjölfarið.“

Í bréfinu segir að öflug endurhæfing stuðli að sjálfstæði og virkri þátttöku en geti jafnframt dregið úr fjárþörf annars staðar í kerfinu. „Eitt mikilvægasta verðmæti endurhæfingarþjónustunnar verður ekki mælt í fermetrum eða til fjár. Það er mannauðurinn. Við endurhæfingarþjónustuna á SAk starfar þverfaglegur hópur með áralanga reynslu og sérhæfða þekkingu sem byggst hefur upp í daglegu samstarfi ólíkra fagstétta. Slíkur þekkingarauður og fagleg menning verða ekki byggð upp á skömmum tíma. Langvarandi óvissa ógnar þessum mannauði. Ef reynslumikið starfsfólk leitar annað getur sérþekking og náin samvinna, sem byggst hefur upp á áratugum tapast hratt og tekið mörg ár að byggja upp að nýju.“

Related posts

Af Heilsustofnun í heilt maraþon

Humarpylsur & Rækjupylsur

„Gómsætir grænmetisréttir á Heilsustofnun“