„Ég fokking kláraði maraþon,“ segir Þorsteinn Haukur Harðarson á Facebook síðu sinni. „Frá sjúkrarúmi í heilt maraþon á 1318 dögum.“ Þorsteinn Haukur var orðinn 150 kíló þegar hann fór á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði fyrir rúmum þremur árum.
„Ég er með CP eða hreyfihömlun vinstra megin og hef glímt við það alla ævi að skrokkurinn sé lélegur vegna heilablæðingar sem varð við fæðingu. Ég hafði misst stjórnina og var orðinn 100 kíló,“ segir Þorsteinn Haukur í viðtali við Morgunblaðið. „Svo gerðist það dag einn í janúar árið 2023 að ég var að beygja mig eftir einhverju fyrir son minn og stóð ekki upp aftur. Þá má segja að vinstri fóturinn hafi bara gefið sig undan þyngdinni og álaginu. Ég endaði á sjúkrahúsi með gula spjaldið en var gert ljóst að í óefni stefndi ef ég myndi ekki gera eitthvað í mínum málum. Ég var í fjórar vikur á Heilsustofnun í Hveragerði og fór að hreyfa mig þar. Ég fann mig smám saman í hlaupum.“
Þorsteinn Haukur segir í Morgunblaðinu að maraþonið hafi reynt gríðarlega á hann. „Ég þarf að passa vel upp á vinstri hliðina en eins og sjúkraþjálfarinn hefur bent á þá geri ég ekki mikið annað en að tylla mér í vinstri fótinn þegar ég er á hlaupum. Krafturinn kemur 80 prósent frá hægri hliðinni. Engu að síður hefur þetta gengið vel. Ég hafði séð fyrir mér gleðina sem myndi fylgja því að koma í mark í maraþoni þar sem fjölskyldan myndi taka á móti manni. En ég verð að segja alveg eins og er að þetta hlaup var ógeðslega erfitt.“
Mynd: Skjáskot af Facebooksíðu Þorsteins Hauks Harðarsonar.