Tælenskt Panang

Tælenskt Panang er einfalt, bragðmikið, hollt og gott. Ég notaði kjúkling í þessa uppskrift en vitanlega má skipta honum út fyrir kartöflur, tofu, sveppi eða blómkál eins og hér er skráð í uppskriftinni. Passlegt fyrir fjóra en nægir vel fyrir sex með hrísgrjónum á kantinum.

Þú þarft:

  • 2 dósir kókosmjólk
  • 3 msk rautt karrýmauk
  • 2 msk hunang
  • 2 msk fish sause
  • 1 lime
  • 1 kg blómkál
  • 100 g baunir
  • 1 pk basil
  • 1 bolli jarðhnetur
  • 2 rauð chili

Aðferð:

  1. Hitið kókosmjólkina með karrýmauki, hunangi, fiskisósu og berki og safa af einu lime. Leyfið karrýsósunni að malla í minnst korter.
  2. Skerið kjötið eða grænmetið í bita og steikið það fallega brúnt í nokkrum skömmtum á pönnu. Bætið því og baununum út í karrýsósuna og sjóðið í um fimm mínútur.
  3. Þurrsteikið hneturnar létt á pönnu við frekar vægan hita. Skerið chili í litlar sneiðar.
  4. Setjið karrýsósuna í skál og stráið yfir hnetum, chili og basil.

Mynd: Pálmi Jónasson

Related posts

Verkir minnka um 42% á Heilsustofnun

Lífsgæði aukast verulega í Hveragerði

Konur í miklum meirihluta